Hugsum í lausnum
Dr. Thoroddsen sérhæfir sig í lausnamiðari og heildrænni ráðgjöf til ungmenna, foreldra og einstaklinga. Áhersla er lögð á að veita verkfæri sem valdefla einstaklinga og hjálpa þeim að vinna með kvíða, depurð, sjálfsskaða, sjálfsmynd og taugafjölbreytileika. Verkfærin byggja á nýjustu þekkingu og rannsóknum.
Viðtöl
Ungmenni
Fyrir ungmenni á aldrinum 13-18 ára.
Viðtalið miðast við 50 mínútur.
Foreldrar
Fyrir foreldra ungmenna.
Viðtalið miðast við 50 mínútur.
Einstaklingar
Fyrir fullorðna einstaklinga.
Viðtalið miðast við 50 mínútur.
Ferlið
Bókun
Hægt er að bóka viðtöl í gegnum fyrirspurnarformið neðst á þessari síðu eða með því að senda tölvupóst á netfangið hér að neðan.
Skimunarviðtal
Í fyrsta viðtali er farið yfir trúnað, hagnýtar upplýsingar, stöðu mála og væntingar. Skimað er eftir vanda og helstu verndandi þáttum sem stuðla að velferð og vellíðan.
Verkfærakista
Í næstu viðtölum eru verkfæri til valdeflingar veitt. Verkfærin eru byggð á gagnreyndum aðferðum með hliðsjón af nýjustu þekkingu og rannsóknum.
Dr. Þeódóra A. Thoroddsen
- bakgrunnur og menntun
Þeódóra hefur alla tíð brunnið fyrir bættri líðan og heilsu. Fyrir vikið aflaði hún sér viðamikillar þekkingar úr háskólum bæði hérlendis og erlendis, með heildræna nálgun í huga. Hún hefur einnig sótt fjöldan allan af námskeiðum og ráðstefnum í tengslum við heilsu og velferð, og hefur þar að auki menntað sig í einkaþjálfun og næringarvísindum. Niðurstöður úr rannsóknum hennar hafa verið birtar og hefur hún hlotið viðurkenningar og styrki fyrir störf sín.
Þeódóra starfaði um tíma sem rannsóknarfélagi við City-háskólann í Lundúnum, þar sem hún skipulagði stóra klíníska rannsókn á nýrri meðferð við sjálfsskaðahegðun meðal ungmenna á bráðadeildum um alla borgina. Undanfarin ár hefur hún starfað hjá Sveitarfélaginu Árborg við að veita ungmennum með margþættan vanda og foreldum þeirra ráðgjöf, með það að markmiði að grípa vandann á fyrri stigum. Þá hefur hún einnig flutt fjölda fyrirlestra þess efnis í Árborg og Reykjavík.
BSc í
Sálfræði (2015)
Háskóli Íslands
MSc í Hugrænum
taugavísindum (2017)
York-háskóli
DPhil (PhD) í
Geðlækningum (2022)
Oxford-háskóli
Hver langferð hefst með einu skrefi
Hafa samband
Dr. Thoroddsen rekur stofu í Reykjavík og veitir ráðgjöf til ungmenna, foreldra og einstaklinga bæði á íslensku og ensku. Hún tekur einnig að sér fræðslu og fyrirlestra.
Stofan er á 3ju hæð og því miður er ekki aðgengi að lyftu.
-
Tölvupóstur
-
Heimilisfang
Verðskrá:
- Viðtal (50 mín.): 20.000 kr.